VLOG | Taylor Swift Eras Tour, smá update & haul 🎀🛍️

Hej allihopa!
Hér kemur lengsta vlog veraldar. Eins og einhverjir vita fór ég á Taylor Swift Eras Tour tónleikana síðasta laugardag og ég verð að segja, þetta var einhver sturlaðasta sem ég hef séð!! Mig langaði helst að setja allar klippurnar sem ég tók upp í þetta vlog eeen það er því miður ekki hægt, ég gerði mitt besta og við krossleggjum fingur að það verði ekki tekið niður! Annað í fréttum, ég er að verða BÚIN með mastersnámið mitt, það eru ekki nema 6 dagar eftir af þessum rússíbana, og ég er mjög tilbúin að klára þetta. Ég varði ritgerðina á dögunum, búin að vera hrikalega stressuð en það gekk alveg ótrúlega vel. Líkaminn hins vegar krassaði harkalega eftir s.l. viku fulla af stressi og ég er orðin hundveik...vonum að það stoppi stutt því ég ætla sko að FAGNA næstu helgi!!🥳
Vona að þið hafið gaman af þrátt fyrir að þetta sé aaalltof langt....Þangað til næst🥰

Пікірлер