BÚSTAÐARHELGI OG STULLI 29!!🥳

Hej allihopa!
Ótrúlega skemmtileg vika að baki! Kíktum í bústað í tilefni af afmæli Stulla síðstu helgi og ég get eiginlega ekki lýst því hvað það var gott að komast aðeins í "úti á landi" orkuna sem við elskum svo heitt. Ég viðurkenni að ég saknaði Hríseyjar alveg extra mikið við að koma í svona lítinn bæ og ég get ekki beðið eftir að komast heim í sumar. Ég sit hins vegar úti á Spáni núna þar sem við munum eyða næstu vikum. Stulli er að vinna og ég að læra á virkum dögum en helgarnar ætlum við að nýta í eitthvað nice og því verða næstu vlog svona aðeins öðruvísi.
Ég vona að þið hafið haft gaman af og séuð sátt við þessa breytingu að posta á sunnudögum! Þangað til næst...🥰🥰

Пікірлер