Fermingar í Fríkirkjunni í Reykjavík

Sigurvin Lárus Jónsson prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík
Lopapeysan fæst hjá Thorvaldsenfélaginu (www.thorvaldsens.is/thorvalds...)
Framundan eru fermingar og Fríkirkjan er full tilhlökkunar að fá að eiga hlutdeild í fermingardegi þeirra sem til okkar hafa leitað.
Fermingin er tímamót í margþættum skilningi. Fermingarárið er tímabil róttækra breytinga í lífi ungmenna. Við kynþroska breytist unga fólkið úr börnum í unglinga og mörg ungmenni taka út vöxt fermingarárið. Stærstu breytingarnar sem eiga sér stað eru þó ósýnilegar en um og eftir 12 ára aldur fara ungmenni að geta hugsað óhlutbundið og sjálfstætt, með hætti sem yngri börn ráða ekki við. Örar breytingar eru erfiðar og unglingsárin geta reynst hættulegur tími. Í tilfinningaróti unglingsára skapast hættan á því að ungt fólk taki rangar ákvarðanir með líf sitt.
Á næstu 10 árum taka fermingarungmenni vorsins stórar ákvarðanir fyrir líf sitt og skilgreina hver þau eru og hvert þau ætla. Þau taka áhugamálin í eigin hendur, munu leggja grunn að því að velja sér nám og starfsvettvang, þau eru að uppgötva sig sem kynverur og svo mætti lengi telja. Ekkert liggur á, en áður en að þau taka þessar ákvarðanir og læra á hver þau eru, er lagður sá grunnur sem þessar ákvarðanir byggja á.
Uppalendur vita sem er að heimurinn er hættulegur staður og að unglingar geta vel tekið rangar ákvarðanir. Þeir standa því frammi fyrir tveimur valkostum andspænis því verkefni að undirbúa börn sín undir unglingsárin og einungis önnur þeirra er fær.
Sá fyrri er að leggja þeim lífsreglurnar með boðum og bönnum. Að segja þeim frá öllu því sem gæti komið fyrir og öllu því sem gæti farið úrskeiðis í lífi þeirra. Að halda þeim frá lífinu til að tryggja að ekkert komi fyrir. Þegar best lætur skilar sú leið öruggum ungmennum en hún skilar örugglega ungmennum sem eru hrædd við lífið.
Seinni kosturinn er að sýna ungmennum með afgerandi hætti að þau eru elskuð og að þau tilheyra og treysta því að þau muni það þegar á reynir. Ungmenni sem upplifa sig elskuð munu taka ákvarðanir sem eru þeim fyrir bestu og ungmenni sem finna sig tilheyra munu leita eftir aðstoð og stuðningi þegar á þarf að halda.
Fermingin snýst einmitt um það. Fermingin hefur það eina hlutverk að segja við ungmenni í orði og verki að það sé elskað og að það sé staðið með því í lífinu.Tímasetningin gæti ekki verið betri. Það er flókið verkefni að vera manneskja og þegar ungmennin eru að hefja þá vegferð að taka ábyrgð á eigin lífi er blásið til veislu til að fagna því að þau séu til og elska þau í drasl!Það er ást í fermingarfötum, fermingargreiðslum, fermingarmyndatökum, fermingarveislum, fermingargjöfunum og þeim árnaðaróskum sem ástvinir miðla til unga fólksins. Með fermingunni er lagður grunnur að þeim ákvörðunum sem unga fólkið stendur frammi fyrir á árunum frá fermingu og fram á fullorðinsár. Þau sem velja að fermast í kirkju fá jafnframt að heyra að ástríkur Guð er með okkur í för. Það fyrirheiti einskorðast ekki við unglingsárin, það er fyrirheiti sem við getum reitt okkur á í gegnum lífið.
Allt þetta umstang er undirbúningur undir lífið - til að segja við þig kæra fermingarungmenni, þú stendur ekki ein, þú stendur ekki einn.
Í Fríkirkjunni í Reykjavík fermast ungmenni endurgjaldslaust.

Пікірлер