Una Torfa á háskólatónleikum í Stakkahlíð 15. febrúar 2023

Tónlistarkonan Una Torfa tróð upp í Fjöru í Stakkahlíð ásamt Hafsteini Þráinssyni á fyrstu háskólatónleikum ársins 2023 en þeir fóru fram 15. febrúar. Una var óskoruð spútniklistakona síðasta árs, heillaði heila þjóð með sérdeilis frábærri frumraun sinni, Flækt og týnd og einmana. Þar steig hún fram með nokkuð afgerandi hætti; heildartónninn hreinn og heiðarlegur, lögin björt, fögur og hrein en líka gáskafull og grallarakennd.

Пікірлер