Söngkeppni Samfés 2024

Söngkeppni Samfés 2024
Laugardaginn 4. maí síðastliðinn var svo haldin hin árlega Söngkeppni Samfés í Laugardalshöll, þar sem þrjátíu efnileg atriði stigu á svið og sýndu hæfileika sína. Samfés hefur staðið að skipulagi og framkvæmd keppninnar síðan 1992 og er hún sýnd á RÚV í beinni útsendingu.
Dómnefndina skipuðu Júlí Heiðar söngvari og leikari, Saga Matthildur söngkona, og Birgir Steinn söngvari, en Eva Ruza samfélagsmiðlastjarna var kynnir. Í dómarahléi komu fram strákarnri í VÆB, Nóri- sigurvegari Rímnaflæðis 2023, og Ína Berglind, sigurvegari Söngkeppni Samfés 2023, sem söng sigurlagið sitt „Tilgangslausar settningar“.
Úrslitin voru eftirfarandi:
1. Sæti : Guðjón Þorgils Kristjánsson með lagið „What Was I Made For“ frá félagsmiðstöðinni Skýjaborg
2. sæti : Íris Alma Kristjánsdóttir með lagið „Proud“ úr félagsmiðstöðinni Tún
3. sæti : Hljómsveitin Basl með lagið „Zombie“ úr félagsmiðstöðinni Elítan
Myndir og myndbönd frá viðburðinum verða birt á heimasíðu og samfélagsmiðlum Samfés, svo fylgist með! Einnig er hægt að sjá keppnina í heild sinni á heimasíðu RÚV.

Пікірлер

    Келесі