Lóan er komin | Barnalög á íslensku

Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
að kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn,
Sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefur sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefur sagt mér að vaka og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.

Пікірлер

    Келесі