Dagur með Jóa Laxdal - Ótrúlegt Evrópuævintýri Stjörnunnar

Fótbolti.net skyggnist bak við tjöldin í íslenska boltanum með GoPro myndbandsupptökuvél.
Atli Sigurjónsson, leikmaður KR, reið á vaðið í síðustu viku og Jóhann Laxdal fetaði í fótspor hans í gær.
Jóhann mátti ekki spila með Stjörnunni gegn Motherwell í Evrópudeildinni en hann tók þátt í stemningunni með Silfurskeiðinni og fagnaði sigri Garðbæinga vel eftir leik.

Пікірлер